Lyrks
Lyrks
Lyrks
Cover Art

Alinn upp af úlfum Lyrics by Bróðir Svartúlfs

Bróðir Svartúlfs

2011

Ég laga bindið og virði eigin spegilmynd fyrir mér, raka af mér mjólkurskegg
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á?
Faðir kenndi mér að handleika byssur en morðhuginn fékk ég í móðurlegg
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á?
Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta...
Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju , sýnið mér faðmana
Fælið þið beinagrindur úr skápnum svo ég verði ey andvaka
Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Ég var alinn upp af úlfum og fólkið var visst um að ég væri vangefið flón
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á?
Dagar og nætur fara einungis í setja saman lygar og hræðileg ljóð
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á?
Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta...
Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Tíminn er eins og vatnið sagði Steinn... Ég er að drukkna
Frá fyrsta degi horft á heiminn í gegnum brotinn glugga
Á tíunda afmælisdaginn lét ég fræ falla til jarðar
Þann tuttugasta var risið tré, af einni grein hékk snara
Röddin í mér er ekki hærri en í manninum mér við hlið
Sögurnar mínar eru ekki betri. Hrafnarsparkið sem að ég rita
Munurinn felst í því að veröldin veitir honum yl
Á meðan að ég get bara öskrað mér til hita
Ég get ekki lifað á ystu nöf, leigan þar er alltof dýr fyrir mann einsog mig
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á?
Heimili mitt er við barinn og vinirnir mínir verðir sem kasta mér á dyr
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindimönnum á?
Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta...
Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Draumurinn er að verða svo frægur að fólk sem að ég þekki ekki, baknagi mig
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á?
Raunin er sú að sannleikurinn hljómar í flestum tilvikum ósannfærandi
Líst ykkur á? Líst ykkur á? Líst ykkur misindismönnum á?
Viljið þið vera svo væn að veita mér inngöngu inn í augun á ykkur hið snarasta...
Sýnið mér ást, sýnið mér hlýju, sýnið mér faðmana
Fælið þið beinagrindurnar úr skápnum svo ég verði ey andvaka
Og sýnið mér ást og sýnið mér hlýju, kyssið mig góða nótt
Við erum ljót en við höfum tónlist sagði Cohen og ég sagði satt
Ég er fílamaðurinn syngjandi, lánið mér fyrir mat
Með raddböndum festi ég landfestar, reisi mitt höfuð upp
Bleiti varirnar og ræski mig, segi ykkur sögur um
Lífið og dauðann og og himinn og hel og áfengið og píkur og tippið og ástina
Og hatur og dísina mína og minningar, heimilið, bæinn og móður og föður og það sem að var
Og það sem að er, það sem að kemur og væntingar mínar til þess
Þið verðið að vera svo væn að veita mér inngöngu ég er ekki eins og þið flest

About “Alinn upp af úlfum” by Bróðir Svartúlfs

Read the complete lyrics to "Alinn upp af úlfum" by Bróðir Svartúlfs from the album "Bróðir Svartúlfs" in 2011. On Lyrks you can follow along with the full text, explore the artist's discography, and discover related songs. The track is often categorized under Rap.

"Alinn upp af úlfum" is performed by Bróðir Svartúlfs. from the album "Bróðir Svartúlfs" in 2011 This page provides the full lyric text for fans who want to sing along, study the songwriting, or compare versions across releases. Lyrks organizes lyrics by artist and song slug so you can bookmark and share a stable URL. Music lyrics help listeners connect with emotion, narrative, and rhythm in a track. Whether you are learning English, researching a favorite chorus, or preparing for karaoke, having accurate line breaks and section labels (verse, chorus, bridge) makes the experience easier. We link to the official artist profile on Lyrks where available, including biography snippets, top songs, and chart placements when we have that data. If you enjoy "Alinn upp af úlfum", explore more songs by Bróðir Svartúlfs using the links below. Chart and trending pages on Lyrks highlight what listeners are searching for this week. For copyright or correction requests, see our DMCA and contact pages.

View all songs and biography for Bróðir Svartúlfs · Trending lyrics · Billboard Hot 100

Frequently asked questions

"Alinn upp af úlfum" is credited to Bróðir Svartúlfs. Songwriting credits may include additional writers listed on the release; check the credits section on this page for linked collaborators.

"Alinn upp af úlfum" appears on "Bróðir Svartúlfs" in 2011.

Visit the Bróðir Svartúlfs artist page at /artist/broir-svartulfs for biography, popular tracks, and links to more lyric pages.