Lyrks
Lyrks
Lyrks
Cover Art

Bólivar Lyrics by Bubbi Morthens

1981

Karlar sjö úr öllum áttum
Eiga hafnarfrí
Fullir inn á fyrstu knæpu
Frjálsir menn á ný
Við skulum drengir drekka og slást
Dreypa á stelpurnar
Við sem yfir Fetlaflóa
Fleyttum „Bólivar“
Rambaði hann í hvítum mekki
Hrikti í nagla og ró
Kolin uppi, laus í löðri
Lestin hálf af sjó
Lekadallur djöfuls sleði
Dæmdra manna far
Svona út á Fetlaflóa
Flaut hann „Bólivar“
Baksaði eins og særður sjófugl
Sífellt út á hlið
Umdi og glumdi eins og smiðja
Ágjöf hverja við
Aðeins stromp og eina siglu yfir löðrið bar
Svona var um Fetlaflóa
Að fleyta „Bólivar“
Sjó um þilfar, kol um kjalsog
Kuggsins fyllti í senn
Skinn úr lófum, frosnir fætur
Feigðartrylltir menn
Fari hann þá sem fyrst í víti
Fái hann lending þar!
Loks varð bæn á Fetlaflóa
Fyrir „Bólivar“
Aldrei hvíld – í hæsta lagi
Hálfmók andartak
Ryðnaglarnir sviptust sundur
Súð og þilfar lak
Áttavitinn elti skott sitt
Eins og köttur snar
Það var syðst á Fetlaflóa
Á ferð með „Bólivar“
Skall þá yfir skell að aftan
Skipstjórinn hló og kvað:
„Hjólið fór til vítis vinir!
Vindurnar af stað!
Festið strax úr stýrishausnum
Streng á trissurnar!“
Svona loks um Fetlaflóann
Fleytt var „Bólivar“
Eins og brenglað, beyglað, hrúgald
Bik og ryð í graut
Baksaði hann til Bilbaó
Með bilað stýri -og flaut!
Ræflum sjö á hripið lögðu
Í hinsta ferðalag
Drottins storma tókst að trompa
Og taka af Ægi slag!
Karlar sjö sem voru í víti
Vappa í land á ný
Fullir inn á fyrstu knæpu
Frjálsir menn á ný
En hvernig er með eigendurna
Er eigi gleði þar?
Yfir því að heim í höfn
Komst hripið „Bólivar“?

About “Bólivar” by Bubbi Morthens

Read the complete lyrics to "Bólivar" by Bubbi Morthens in 1981. On Lyrks you can follow along with the full text, explore the artist's discography, and discover related songs. The track is often categorized under Iceland, Pop.

"Bólivar" is performed by Bubbi Morthens. in 1981 This page provides the full lyric text for fans who want to sing along, study the songwriting, or compare versions across releases. Lyrks organizes lyrics by artist and song slug so you can bookmark and share a stable URL. Music lyrics help listeners connect with emotion, narrative, and rhythm in a track. Whether you are learning English, researching a favorite chorus, or preparing for karaoke, having accurate line breaks and section labels (verse, chorus, bridge) makes the experience easier. We link to the official artist profile on Lyrks where available, including biography snippets, top songs, and chart placements when we have that data. If you enjoy "Bólivar", explore more songs by Bubbi Morthens using the links below. Chart and trending pages on Lyrks highlight what listeners are searching for this week. For copyright or correction requests, see our DMCA and contact pages.

View all songs and biography for Bubbi Morthens · Trending lyrics · Billboard Hot 100

Frequently asked questions

"Bólivar" is credited to Bubbi Morthens. Songwriting credits may include additional writers listed on the release; check the credits section on this page for linked collaborators.

Album information for "Bólivar" is not available in our database yet. You can still read the full lyrics on this page.

Visit the Bubbi Morthens artist page at /artist/bubbi-morthens for biography, popular tracks, and links to more lyric pages.