Lyrks
Lyrks
Lyrks
Cover Art

Með jötnum Lyrics by Skálmöld

Með vættum

2014

Æsist jötunn, eðlishvöt
Oss frá glötun bjargar
Rífur göt á feld og föt
Flensar kjöt og sargar
Skriðjöklar gnauða og skrafa í myrkrinu
Skjálfti um höfðana fer
Koma þau skríðandi úr kafi
Kafloðin skrímslin úr hafi
Bryðjandi grjótið og bergið og þúfurnar
Brestur í öllu sem er
Stætt er þá engum á ströndum
Storknað er blóðið á höndum
Ver oss vökull
Vatnajökull
Dansar dátt mey
Dyrhólaey
Vaknar í látunum vinur úr dvala
Og veður í óvinaskaut
Hann er með konu á herðum
Hér vinnur bóginn á sverðum
Stafnum í jörðina stingur hann hamrammur
Stökkva þá dýrin á braut
Brotnaði risinn úr bergi
Berserkur hvikar nú hvergi
Skelfur jörð
Skelfur þar jörðin er skellur
Skaftið á hraunlagðar hellur
Stendur vörð
Stendur hann vörð þegar steðjar að hætta
Hann stendur með okkur og fellur
Falla lauf
Falla þá laufin að foldu
Frjósa lík saman við moldu
Birtan dauf
Birtan er dauf þegar bardaga lýkur
Þar bíða þau tvö sem að þoldu
Brotnar sjór
Brotnar þá sjórinn á bergi
Bátarnir þoldu víst hvergi
Hverfur mór
Hverfur af mórinn en hvitslegin björgin
Víst hvíla á eldgömlum mergi
Kólnar blær
Kólnar svo blærinn og kreppir
Kverkunum risinn ei sleppir
Losna klær
Losnar um klær þegar lífið út fjarar
Og Loki þá óvininn hreppir
Halda bönd
Halda þau bönd er við hnýttum
Heiðrum þær stundir er nýttum
Jötnahönd
Jötna- með hönd var þar járnstafur reistur
Í jarðvegi lenti hann grýtt um
Sofna börn
Sofna loks börnin er sekkur
Sólin við fjarlægar brekkur
Bæjartjörn
Bæjarins tjörn tekur blásvartan skugga
Er bergrisinn úr henni drekkur
Jötnahönd, járn- með vönd
Jökull skelfur, freyðir strönd
Jafnan halda engin bönd
Jötnahönd, jötnahönd
Jötnahönd, járn- með vönd
Jörðin opnast, sökkva lönd
Jakar íss við sjónarrönd
Jötnahönd, jötnahönd
Credits

About “Með jötnum” by Skálmöld

Read the complete lyrics to "Með jötnum" by Skálmöld from the album "Með vættum" in 2014. On Lyrks you can follow along with the full text, explore the artist's discography, and discover related songs. The track is often categorized under Iceland, Folk Metal, Rock.

"Með jötnum" is performed by Skálmöld. from the album "Með vættum" in 2014 This page provides the full lyric text for fans who want to sing along, study the songwriting, or compare versions across releases. Lyrks organizes lyrics by artist and song slug so you can bookmark and share a stable URL. Music lyrics help listeners connect with emotion, narrative, and rhythm in a track. Whether you are learning English, researching a favorite chorus, or preparing for karaoke, having accurate line breaks and section labels (verse, chorus, bridge) makes the experience easier. We link to the official artist profile on Lyrks where available, including biography snippets, top songs, and chart placements when we have that data. If you enjoy "Með jötnum", explore more songs by Skálmöld using the links below. Chart and trending pages on Lyrks highlight what listeners are searching for this week. For copyright or correction requests, see our DMCA and contact pages.

View all songs and biography for Skálmöld · Trending lyrics · Billboard Hot 100

Frequently asked questions

"Með jötnum" is credited to Skálmöld. Songwriting credits may include additional writers listed on the release; check the credits section on this page for linked collaborators.

"Með jötnum" appears on "Með vættum" in 2014.

Visit the Skálmöld artist page at /artist/skalmold for biography, popular tracks, and links to more lyric pages.